Í dag verður Þátturinn Tíu dropar í beinni útsendingu, kl 13.00 – 15.00.

Það eru „Tröllahjónin“ Kristín Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári sem stjórna þættinum.

Þátturinn verður sendur út beint frá Siglufirði.

Þau spjalla um allt á milli himins og jarðar, fara yfir fréttir og spila létt lög. Einnig er ætlunin að skoða ný lög sem eiga að fara í spilun á FM Trölla.

Í þættinum verður upplýst hverjir hljóta titilinn “Maður ársins”, á Siglufirði og Ólafsfirði, sem lesendur Trölla völdu nú í desember.

Björgunarsveitin Strákar verður með leik sem gengur út á að hlustendur geta hringt inn í þáttinn í síma 580 0 580 og freistað þess að hreppa glæsilegan vinning.

Fylgist með þættinum Tíu Dropar á FM Trölla á sunnudögum kl. 13. FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga og í Skagafirði, 102.5 á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim á vefnum trolli.is

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta efst á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is