eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.
Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.
FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Evelyn Ýr Kuhne.
Evelyn Ýr Kuhne á Lýtingsstöðum í Skagafirði hefur ásamt fjölskyldu sinni byggt upp öfluga ferðaþjónustu með íslenska hestinn, hestaferðir og hestasýningar í forgrunni.
Samhliða þessu hefur Evelyn tekið virkan þátt í uppbyggingu ferðaþjónustunnar í landshlutanum og fékk á dögunum viðurkenningu frá Markaðsstofu Norðurlands fyrir störf sín í þágu ferðaþjónustunnar.
Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.
feed.podbean.com/ssnv/feed.xml feed.podbean.com/ssnv/feed.xml feed.podbean.com/ssnv/feed.xml