Fólkið á Norðurlandi vestra

eru hlaðvarpsþættir (e. podcast) sem SSNV stendur fyrir, þar sem rætt er við einstaklinga í landshlutanum sem eru að sýsla við áhugaverða hluti á hinum ýmsu sviðum.

Í dag birtist nýtt viðtal í þessari seríu, og er nýtt viðtal birt vikulega á miðvikudögum.

FM Trölli sendir viðtölin út að kvöldi birtingardags, þannig að viðtal vikunnar verður á dagskrá FM Trölla í kvöld kl. 21. Viðtölin eru u.þ.b. 20 – 30 mínútur að lengd og að þessu sinni ræðir Unnur Valborg Hilmarsdóttir við Karólínu í Hvammshlíð.

Karólína í Hvammshlíð kallar ekki allt ömmu sína. Hún flutti íbúðarhúsið sitt úr Hegranesi í Skagafirði yfir í Hvammshlíð í Austur Húnavatnssýslu.

Þá hafði jörðin verið í eyði í 150 ár og býr þar með hundunum sínum tveimur og 50 kindum. Hún hefur búið sér hlýlegt heimili og sinnir hinum ýmsu verkefnum auk búskapar.

Við tókum hús á Karólínu, áttum hjá henni góða stund og heyrðum af hennar högum.

Hér eru þrjár leiðir til að sækja “podcast-ið” í mismunandi tækum. Einnig má hlusta á vefnum með því að smella hér.

feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml     feed.podbean.com/ssnv/feed.xml