RARIK mun koma til móts við þá viðskiptavini sem urðu fyrir rafmagnsleysi í hinu fordæmalausa illviðri sem brast á 10. desember 2019.

Bætur vegna keyrslu varaaflsvéla

Ýmsir hafa orðið fyrir kostnaði vegna olíu- og gasnotkunar við framleiðslu á rafmagni eða við upphitun. Hægt er að sækja um endurgreiðslu á þeim kostnaði með því að fylla út eftirfarandi eyðublað.

UMSÓKN UM ENDURGREIÐSLU

Bætur vegna tjóns á búnaði

Venju samkvæmt bætir RARIK tjón á rafbúnaði viðskiptavina sem verður vegna spennusveiflna í rafmagnstruflunum. Þeir sem hafa orðið fyrir slíku geta fyllt út eftirfarandi kvörtunareyðublað.

KVÖRTUNAREYÐUBLAÐ

Mynd: RARIK