Botn:
- 100 g smjör
- 100 g suðusúkkulaði
- 100 g karamellufyllt súkkulaði, t.d. Rolo, Galaxy, karamellufyllt Pipp eða mars.
- 4 msk síróp
- 4-5 bollar Rice Krispies
Bræðið smjör, súkkulaði og síróp saman í rúmgóðum potti við vægan hita. Takið pottinn af hitanum og hrærið Rice Krispies saman við. Setjið blönduna í form og látið kólna í ískáp.
Bananarjómi:
- 1 peli rjómi (2,5 dl)
- 1 stór banani
Stappið bananann og þeytið rjómann. Blandið stöppuðum banananum varlega saman við rjómann og breiðið yfir botninn.
Karamellusósa:
- 20-30 ljósar Nóa töggur (eða aðrar karamellur)
- 1 dl rjómi
Bræðið töggurnar í rjómanum við vægan hita og hrærið þar til blandan er slétt. Kælið karamellusósuna áður en hún er sett yfir rjómann.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit