- 500 gr kjúklingabringur
- smjör
- 2 skarlottulaukar
- 2 gulrætur
- nokkrar matskeiðar chilisósa
- 1 dós niðursoðnir hakkaðir tómatar
- 8 dl vatn
- 2 kjúklingateningar (eða 1 kjúklinga- og 1 grænmetisteningur)
- 1-2 hvítlauksrif
- 1 peli rjómi (2 ½ dl)
- 100 gr rjómaostur
- 2-3 lúkur af pasta
- smá cayenne pipar
- pipar og salt
- púrrulaukur
- rifinn ostur (mér þykir gott að rífa óðalsost)
Skerið kjúklinginn í bita, saxið laukinn og skerið gulræturinar í sneiðar. Steikið kjúklinginn upp úr smjöri. Þegar kjúklingurinn er að verða tilbúinn er lauknum og gulrótunum bætt út í og steikt saman þar til laukurinn er orðinn mjúkur. Bætið niðursoðnum tómötum, chilisósu, vatni, rjóma og teningum út í og látið suðuna koma upp. Bætið rjómaostinum í pottinn í smáum skömmtum og látið blandast vel. Bætið pastanu í pottinn og látið sjóða þar til það er tilbúið. Smakkið til með salti, pipar og cayennepipar.
Skerið púrrulaukinn í þunnar sneiðar. Berið súpuna fram með púrrulauk, rifnum osti og góðu brauði.
Uppskrift: Ljúfmeti og lekkerheit