Okkur er ánægja að geta sagt frá segir í fréttatilkynningu frá FÁBBR að við úthlutun úr Formninjasjóði þann 25. mars 2021, var FÁBBR veittur styrkur, að upphæð 2.000.000 kr. til að framkvæma endurbætur á Sindra sem er rúmlega 7 metra langur súðbyrðingur smíðaður árið 1936 í Hvallátrum á Breiðafirði.

Svona styrkur er ómetanlegur stuðningur við okkar starf við að vernda Breiðfirska bátaarfinn og kunnum Fornminjasjóði og Minjastofnun bestu þakkir fyrir”. 

Ráðgert er að vinna að viðgerðinni í Báta- og hlunnindasýningunni á Reykhólum  sumarið 2021 og mun Hafliði Aðalsteinsson skipasmíðameistari, formaður FÁBBR, stýra framkvæmd hennar.

Hér er um að ræða upplagt tækifæri til að heimsækja Reykhóla og sjá handverk breiðfirskra skipasmiða á lifandi safni.

Auglýst verður hvenær unnið verður að viðgerðunum þegar nær dregur.

Hér að neðan eru krækjur á ýmsan fróðleik.

Fornminjasjóður 2021: https://www.minjastofnun.is/sjodir/fornminjasjodur/styrkuthlutanir/2021/

Fróðleikur um Sindra.  http://batasmidi.is/blog/2015/09/29/737118/

Myndir af Sindra: http://batasmidi.is/photoalbums/274830/

Bátasafn Breiðafjarðar: http://www.reykholar.is/stjornsysla/stofnanir/Batasafn_Breidafjardar/

Heiðursiðnaðarmenn 2020:  http://batasmidi.is/blog/yearmonth/2020/04/  

Forsíðumynd/ Hafliði Aðalsteinsson og Guðmundur Theódórsson á Sindra 2015
Frétt/ aðsend