Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Runólf Pálsson í embætti forstjóra Landspítala til næstu fimm ára. Ákvörðun ráðherra er tekin að undangengnu mati lögskipaðrar hæfnisnefndar sem mat Runólf meðal þeirra umsækjenda sem hæfastir þóttu til að gegna embættinu.

Runólfur Pálsson er læknir að mennt með sérfræðiréttindi í lyflækningum og nýrnalækningum. Runólfur hefur afburðarþekkingu á öllum þáttum faglegrar starfsemi spítalans en hefur einnig yfirgripsmikla þekkingu á heilbrigðiskerfinu hér á landi í víðu samhengi, samspili stofnana og mismunandi þjónustustiga. Hann hefur verið leiðandi og  farsæll í klínískum störfum og sem stjórnandi. Runólfur  hefur unnið að innleiðingu margvíslegra umbóta og nýjunga og framtíðarsýn hans fyrir Landspítala er skýr.

Runólfur hefur mikla reynslu og þekkingu á kennslu- og þjálfunarhlutverki spítalans. Hann var kennslustjóri lyflækningasviðs og staðgengill framhaldsmenntunarstjóra lyflækningasviðs Landspítala auk þess að hafa komið að fjölda nefnda og annarra stefnumótandi starfa í tengslum við kennslu- og þjálfunarhlutverk spítalans.

Runólfur er prófessor við Háskóla Íslands og varaforseti læknadeildar Háskóla Íslands. Þá hefur hann gegnt leiðandi hlutverki á alþjóðavettvangi á sviði lyflæknisfræði. Hann hefur verið afkastamikill í vísindastarfi og hefur mikinn metnað og skýra sýn á akademískt hlutverk spítalans og umbætur á því sviði sem og mikilvægi tengsla spítalans við háskólastofnanir.

Runólfur tekur við embætti forstjóra 1. mars næstkomandi.

Mynd/Landspítali