Matvælastofnun varar við neyslu á kóreskum perum frá Kína sem fyrirtækið Dai Phat hefur flutt inn. Leifar af varnarefninu klórpyrifos fundust í perunum en það er ólöglegt að nota það í matvælaframleiðslu. Fyrirtækið hefur með aðstoð heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur innkallað vöruna.

Innköllunin á einungis við eftirfarandi vöru:

  • Vöruheiti: Kóreskar perur
  • Framleiðandi: Laiwu Manhing Co Ltd, No. 8 Wangxing Road, Yangzhuang LaiWu, 
  • Framleiðsluland: Kína
  • Innflytjandinn: Dai Phat Trading inc. ehf, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.
  • Dreifing: Verslun Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Neytendur sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki, farga eða skila henni til verslunar gegn endurgreiðslu.