Starfsemi hjá Karlakór Fjallabyggðar hefst að nýju mánudaginn 23. janúar næstkomandi klukkan 19:00.  Æfingar fara fram í Tónlistarskólanum Aðalgötu 27 á Siglufirði.

Kórstarfið hefur legið niðri frá því að Covid-19 faraldurinn hófst.

Fjöldi núverandi kórfélaga hefur nú þegar staðfest þátttöku sína sem og nýir kórfélagar.  Gamlir félagar eru hjartanlega velkomnir í kórinn.

Karlakórinn í Fjallabyggð hefur fengið til liðs við sig tvo nýja stjórnendur, þau Eddu Björk Jónsdóttur kórstjóra og Guðmann Sveinsson sem mun sjá um hljómsveit kórsins.

Áhugasamir nýliðar eru boðnir sérstaklega velkomnir.

Kórfélagar eru beðnir að taka með sér nóturnar, byrjað verður á léttu spjalli og upprifjun.

Frá einni æfingu kórsins áður en Covid-19 faraldurinn hófst.

Facebook síða karlakórsins:
https://www.facebook.com/karlakorinnifjallabyggd



Aðsent