Á sjálfan kosningadaginn, laugardaginn 26. maí s.l. bauð einn af sonum Siglufjarðar, Elías Þorvaldsson til veislu í tilefni af 70 ára afmæli sínu. Fjölmenni var í veislunni sem var hin veglegasta í alla staði. Gómsætur matur og drykkur var fram borinn, fjöldi skemmtiatriða var á dagskrá og allir skemmtu sér konunglega. Jafnvel tapsárir Liverpool aðdáendur mættu þótt sumir væru enn í losti yfir frammistöðu(leysi) síns liðs.
100 manna afmælisveisla
Karlakórinn í Fjallabyggð ásamt Rabba í Gautum
Kristján Hauksson hreint óborganlegur í hlutverki Danans
Elías leikur lagstúf sem prjónaður er í handprjónaða peysu sem karlakórinn gaf afmælisbarninu
Birgir Ingimarsson að syngja einsöng með Karlakórnum í Fjallabyggð
Sara Lind, afastelpa spilaði á píanó með kórnum, Ómar Hauksson á bassa
Ánægðir veislugestir í góðum gír
Bræðurnir Stefán og Björn Ólafssynir sungu fyrir afmælisbarnið, sem átti að horfa í augu konu sinnar á meðan
Guðný, eiginkona afmælisbarnsins
Veislustjóri var Ómar Hauksson
Unglingahljómsveitin Gautar frá Siglufirði, kannski byrja þeir að spila aftur, hver veit
Gautar tveir, Elli og Sverrir Elefsen
Björn “Bubbi” Ólafsson færði afmælisbarninu sérhannaðan pissustaf, við mikinn fögnuð áhorfenda
Nákvæmar leiðbeiningar með pissustafnum, sem nýtist bæði eldri og yngri, að sögn Bubba
Kvikmyndagerðarmenn höfðu i nógu að snúast
Steini Sveins og ónefndur hljóðmaður að ræða eitthvað mjög mikilvægt, – eða ekki
Myndir: Kristín Sigurjónsdóttir
Texti: Gunnar Smári Helgason