Atvinnu-, menningar- og kynningarnefnd samþykkti á fundi sínum í júní að Sæluvika Skagfirðinga 2020 muni fara fram dagana 27. september til 3. október nk.

Fresta þurfti Sæluviku vegna þeirra takmarkana sem í gildi voru í samfélaginu vegna Covid-19 en hún er ávallt haldin í lok apríl ár hvert.

Leikfélag Sauðárkróks mun frumsýna leikritið “Á frívaktinni” í Sæluviku, veitt verða samfélagsverðlaun Skagafjarðar ásamt fjölda annarra viðburða. 

Á myndinni eru Pilsaþyts konur við setningu Sæluviku.

Heimild og mynd: skagafjordur.is