Vegagerðin bauð út flugleiðina Reykjavík – Vestmannaeyjar í júní 2024 og barst eitt tilboð í verkið, frá Mýflugi ehf. 

Tilboðið hljóðaði upp á tæpar 108 m.kr. fyrir þriggja ára tímabil.  Um er að ræða flug yfir vetrarmánuðina desember – febrúar og verður flogið fjórar ferðir í viku á milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur.

Flugleiðin er styrkt sérstaklega af ríkinu til að tryggja tímabundna lágmarksþjónustu á þessari leið á meðan markaðslegar forsendur eru ekki til staðar, enda er flugið mikilvægt fyrir íbúa og atvinnulíf á svæðinu.

Gerður hefur verið samningur um flugið við Mýflug ehf. og tekur hann gildi 1. desember 2024.

Mynd/Vegagerðin