Nýsköpunarfyrirtækið AMC fékk nýverið tveggja ára Sprota styrk frá Rannís upp á samtals 20 milljónir til að þróa fyrsta samsetta fiski leðrið á Íslandi. Fyrirtækið er í eigu ungs frumkvöðla pars á Norðurlandi. Þau María Dís Ólafsdóttir, lífverkfræðingur, og Leonard Jóhannsson, vélfræðingur.

Áður hafði verkefnið fengið FRÆ styrk Rannís og vann titilinn Norðansprotinn í hugmyndasamkeppni síðast liðið vor. Í framhaldi af keppninni tók teymið þátt í hraðlinum Vaxtarrými sem lauk fyrir skemmstu og er á vegum SSNE, SSNV, RATA og Eims. Verkefnið fékk nýverið endanlegt nafn og ber heitið Nanna Lín. Vinna hófst síðast liðið vor þó hugmyndin sé ári eldri. Nanna Lín er leður gert úr afgangs roði og mun lokaafurðin vera sterkt og gott leður í metravís.

Með því að nýta hliðarafurðir til leður gerðar má t.d. leysa ýmis gervi textílefni af hólmi og draga með því úr mengun og losun vegna þeirra. Varan er t.a.m. ætluð húsgagnaframleiðendum, bólstrurum og öðrum hönnuðum sem vinna með textíl. “Þetta er mjög stórt og spennandi verkefni sem við eigum fyrir höndum. Með því að bjóða upp á stóra fleti af leðri má ná mun betri nýtni í framleiðslu á vörum, samanborið við leður sútað með hefðbundnum hætti“ segir María. Þessa dagana er teymið að koma nýrri heimasíðu í loftið og láta endurteikna lógó.

Jólunum verður eytt í rólegheitunum, en svo fer allt á fullt eftir áramót. “Ég hef alltaf haft óendanlegan áhuga á hliðarafurðum og því púsli sem því fylgir. Fyrir mér er þetta eitthvað sem þarf að gera, og þarf að fullreyna. Við höfum mjög spennt fyrir verkefninu.“ segir María.

Forsíðumynd/ María Dís Ólafsdóttir, eigandi og framkvæmdastjóri AMC.
Mynd: Kolfinna María Níelsdóttir, Eimi.