Viljayfirlýsing um samstarf Pálshúss og Menntaskólans á Tröllaskaga var undirrituð í skólanum í gær. Samstarfið mun meðal annars felast í heimsóknum nemenda skólans og nýtingu á safnkosti og sýningarsölum safnsins til skapandi starfa og verkefna nemenda.

Einnig getur falist í samstarfinu miðlun á þekkingu starfsfólks Pálshúss til nemenda MTR með erindum um safnkostinn, uppbyggingu safnsins, frumkvöðlastarf, þátttöku í ferðaþjónustu á Tröllaskaga og fleiru. Þá er mögulegt að sýna verk nemenda í húsinu.

Í Pálshúsi er safn, menningar- og fræðslusetur. Í húsinu er Náttúrugripasafn Ólafsfjarðar og grunnsýningin „Flugþrá“ þar sem skoða má alla íslensku fuglaflóruna. Önnur grunnsýning er um náttúruundrið Ólafsfjarðarvatn. Húsið er kennt við Pál Bergsson sem var forkólfur í útgerð í Ólafsfirði. Elsti hluti hússins var reistur í lok nítjándu aldar.

Á forsíðumynd eru Þorsteinn Ásgeirsson sem situr í stjórn Pálshúss og Þórarinn Hannesson, menningarfulltrúi menntaskólans.

Mynd: HF