Selasetur Íslands á Hvammstanga hlaut fyrstu verðlaun Evrópusamtaka fyrirtækja og þjónustuaðila í menningartengdri ferðaþjónustu (ECTN) í síðustu viku.

 

Samtökin veita árlega viðurkenningar í nokkrum flokkum og hlaut Selasetrið verðlaunin ásamt Batana umhverfissafninu í Króatíu, í flokki óáþreifanlegrar arfleifðar – Intangible Heritage.

Sagt var frá þessu í Morgunblaðinu. Að sögn Sigurðar Líndal Þórissonar, framkvæmdastjóra Selasetursins skiptir viðurkenning sem þessi miklu máli fyrir starfsemina og starfsmenn eru stoltir af þessum árangri.

„Raunverulega snýst viðurkenningin ekki síst um þá hugmynd heimafólks að setja á stofn selasetur. Starfsemin er rekin í þágu samfélagsins á svæðinu og í þágu vísindanna og við höfum ávinning samfélagsins að leiðarljósi,“ var haft eftir Sigurði.

 

Sjá einnig eldri frétt hér á trolli.is