Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingi í starf sérfræðings við opinbert eftirlit með matvælum. Um er að ræða 100% starf með starfsstöð í Hafnarfirði, en starfið heyrir undir héraðsdýralækni Suðvesturumdæmis. Starfið krefst einhverra ferðalaga um landið. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Eftirlit með fiskvinnslum og fiskiskipum
- Eftirlit með löndunaraðstöðu og aflameðferð
- Eftirlit með mjólkurvinnslum
- Eftirlit með kjötvinnslum
- Eftirlit með fiskeldi
- Eftirlit með fóðri og áburði
- Önnur tengd eftirlits- og sérfræðistörf
Hæfnikröfur
- Krafa um menntun í matvælafræði, dýralækningum, líffræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
- Þekking á HACCP aðferðafræðinni
- Haldbær þekking og reynsla af vinnu við vinnslu matvæla
- Reynsla af opinberu eftirliti er kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð almenn tölvukunnátta
- Sjálfstæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
- Vilji / hæfni til að starfa í teymi
- Góð framkoma og lipurð í samskiptum
- Bílpróf er skilyrði
Nánari upplýsingar um starfið veitir Konráð Konráðsson héraðsdýralæknir Suðvesturumdæmis, konrad.konradsson@mast.is í síma 530 4800. Umsókn skal fylgja prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Sótt er um starfið á Starfatorgi.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október n.k. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Mynd: mast.is