Vert er að minna aftur á að í desember þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til sjúkrasjóðs Einingar-Iðju og vegna fræðslusjóða félagsins.
Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram 30. desember nk. og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.
Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi í dag, 17. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í lok janúar 2022.
Upplýsingar um sjúkrasjóð og fræðslustyrki
Mynd/Eining-Iðja