Sigurður Guðmundsson sendi frá sér lagið Þetta líf er allt í læ. Lagið er komið í spilun á FM Trölla.

Þetta líf er allt í læ er titillag nýrrar sólóplötu Sigurðar Guðmundssonar.

Lagið er sumarlegt diskóstuðlag og gestasöngur er af albesta tagi. Það er hin frábærlega hæfileikaríka Una Torfa sem syngur með Sigurði. 

Textinn fjallar um að láta beislið síga. Feykja slabbinu og snýtiklútunum langt út á haf. Og hækka í botn.

Lagið var tekið upp í Skammakróknum, Hafnarfirði og á því leika; Helgi Sv. Helgason á trommur, Guðmundur Pétursson á rafgítar. Sigurður leikur sjálfur á bassa, hljómborð og annað.

Upptökum stjórnaði SG.


Aðsent