Síldarkaffi býður heldri borgurum í Fjallabyggð til samverustunda í Salthúsinu alla föstudaga kl. 13:30.

Markmiðið er að skapa tækifæri til notalegra samverustunda og verður kaffihúsið opið sérstaklega alla föstudaga fram til jóla.

Boðið verður upp á ýmis tilboð á kökum og kruðeríi og verður framboðið breytilegt milli vikna. Svo má alltaf grípa í spil, lesa bók, spjalla eða syngja saman.

Mynd/Síldarkaffi