Vænta má hvassviðris víða um land og hefur Veður­stof­an var­að við erfiðum akst­urs­skil­yrðum á fjall­veg­um fyr­ir norðan og aust­an.

Spáð er aukinni ofan­komu á sunnu­dag­inn sem gæti gert akst­urs­skil­yrði enn erfiðari. 

Norðaustan 10-18 m/s, en hvassara í vindstrengjum undir Vatnajökli. Él á Norður- og Austurlandi, en þurrt og bjart um landið sunnanvert.
Frost 0 til 6 stig, en frostlaust sunnantil yfir daginn.

Á sunnudag:
Norðaustan 13-20 m/s og víða él eða snjókoma, en þurrt að kalla sunnanlands. Frost 0 til 7 stig.

Á mánudag:
Norðaustan 8-15 og él norðan- og austanlands, en bjartviðri sunnan heiða. Hiti breytist lítið.