Lagður var fram samningur um starfslok við Gunnar Inga Birgisson á 179. fundi bæjarstjórnar Fjallabyggðar

Fráfarandi bæjarstjóri sagði starfi sínu lausu af persónulegum ástæðum frá og með 1. desember sl. Gunnar Ingi mun ekki vinna uppsagnarfrestinn.

Bæjarstjórn samþykkir framlagðan samning um starfslok og þakkar honum fyrir vel unnin störf og samstarfið og óskar honum velfarnaðar.

Bæjarstjórn samþykkir með 7 atkvæðum.
Samkomulag um starfslok

Starfslokasamningur Gunnars I. Birgissonar