Á kortavef Fjallabyggðar er nú hægt að sjá þær lóðir sem lausar eru til umsóknar. Á kortavefnum er einnig hægt að fá upplýsingar um stærð lóða og hámarks byggingarmagn samkvæmt deiliskipulagi. Ennþá er unnið að því að deiliskipuleggja nokkrar lóðir og verður þeirri vinnu lokið í lok árs.

Umsóknir lóða fara í gegnum Rafræn Fjallabyggð – íbúagátt þar sem umsækjandi skráir sig inn með rafrænum skilríkjum eða íslykli.  Tæknideild Fjallabyggðar veitir einnig frekari upplýsingar um lausar lóðir og deiliskipulag lóða í Fjallabyggð,  í síma 464-9111 eða með tölvupósti á fjallabyggd@fjallabyggd.is.

Ívilnanir

Á 786. fundi bæjarráðs Fjallabyggðar var samþykkt með vísan til heimildar í a-lið 8. gr. samþykktar um gatnagerðargjöld og sölu byggingaréttar í Fjallabyggð frá 4. júlí 2018 að fella tímabundið niður öll gatnagerðargjöld í Fjallabyggð. Tekur ákvörðunin þegar gildi og gildir til 31.12.2024.

Umsóknir, reglur um úthlutanir og gjaldskrár:

Lóðarumsókn á íbúagátt Fjallabyggðar

Reglur um úthlutun lóða í Fjallabyggð

Reglur um úthlutun frístundalóða í Fjallabyggð

Gjaldskrá byggingarfulltrúa

Mynd/af kortasjá Fjallabyggðar