Leitað er að drífandi og áhugasömum einstaklingi til starfa á Síldarminjasafni Íslands á Siglufirði. Starfið er fjölbreytt og snýr að skráningu safnkosts, miðlun, leiðsögnum og safnfræðslu sem og eðlilegri aðkomu að fjölbreytilegum verkefnum á umfangsmiklu safni. Um er að ræða fullt starf og þarf viðkomandi að geta unnið utan hefðbundins dagvinnutíma í tengslum við viðburði og gestamóttöku.
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af safnastarfi æskileg
- Þekking á Sarpi, menningarsögulegu gagnasafni, kostur
- Góð tölvukunnátta
- Gott vald á íslensku og ensku, í töluðu og rituðu máli
- Geta til að vinna undir álagi og að sinna fjölbreyttum verkefnum samtímis
- Sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, nákvæmni, útsjónarsemi og sveigjanleiki
- Frumkvæði, jákvæðni, þjónustulipurð og hæfni í mannlegum samskiptum
Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk. Ráðning er til eins árs. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Nánari upplýsingar veitir safnstjóri í síma 865 2036.
Umsókn og ferilskrá sendist til Anitu Elefsen, safnstjóra á netfangið: anita@sild.is