„Sker út hjarta og skil það eftir, eigin sjálfsmynd innantóm.“ Þannig hefst nýjasta smáskífa Myrkva, sem komin er á spilunarlista FM Trölla.

En í viðlögunum dregur ský frá sólu, því jafnvel þó lífið sé ósanngjarnt, þá er það nú alveg ágætt. „Þó ekkert gangi og ég sé ástfanginn, þrátt fyrir stressið og mína bresti.“

Myrkvi er listamannsnafn Magnúsar Thorlacius.

Breiðskífan Rykfall er væntanleg. Hún er töluvert frábrugðin síðustu plötu, Early Warning, sem var samin með Yngva Holm og byggði á útsetningum fyrrum hljómsveitarmeðlima þeirra í Vio, þar sem tónlistaferill Magnúsar hófst.

Sveitin sigraði Músíktilraunir árið 2014 og hlaut á sínum tíma tvær tilnefningar til Íslensku Tónlistarverðlaunanna.

Myrkvi leit fyrst dagsins ljós árið 2020 með lagi sem naut mikilla vinsælda, Sér um sig.