Skíðafélag Ólafsfjarðar fékk glæsilegan styrk úr menningar- og viðurkenningarsjóði KEA. Styrkurinn var afhentur við hátíðlega athöfn í Hofi á Akureyri.
Elsa Guðrún Jónsdóttir tók við styrknum fyrir hönda SÓ. Styrkurinn sem félagið fékk hljóðar upp á 200.000 kr. til reksturs félagsins.
“Eins og við vitum þá er okkar aðal starf tengt barna og unglingastarfi auk þess að reka skíðasvæðið í Ólafsfirði. Félagið heldur öllu jafna fjóra stóra viðburði á ári og hefur verið í stöðugum vexti undanfarin ár.
Styrkurinn er okkur afar mikilvægur og þökkum við KEA kærlega fyrir okkur” segir á vefsíðu SÓ.
Mynd/af vefsíðu SÓ