Sú staða er komin upp að tveir starfsmenn Grunnskóla Dalvíkurbyggðar hafa greinst jákvæðir með Covid-19 í heimaprófi og einn nemandi í 1. bekk. Þessir aðilar munu fara í PCR próf í dag fimmtudaginn 18. nóv. 

Í ljósi þessarar stöðu og til að forðast hópsmit munu grunnskóli og Frístund falla niður í dag, fimmtudaginn 18. nóv. og einnig föstudaginn 19. nóv.

Tónlistarskólinn á Tröllaskaga:
Öll tónlistarkennsla fellur niður í Tónlistarskólanum á Tröllaskaga eins og fram kemur í rafpósti sem barst til foreldra í gærkvöldi.

Ef barnið ykkar finnur fyrir minnstu einkennum farið þá með það í PCR próf.

Vinsamlega kynnið ykkur reglur um smitgát á https://www.covid.is/undirflokkar/smitgat

Í smitgát er æskilegt að:
Gæta vel að persónubundnum sóttvörnum.
Forðast mannmarga staði að óþörfu og sleppa fjölmennum viðburðum.
Vera vakandi fyrir einkennum og fara í PCR próf ef einkenna verður vart.
Vonandi tekst okkur að koma í veg fyrir að hópsmit komi upp með þessum aðgerðum.