Smávirkjanir á Norðurlandi vestra
Lyftistöng fyrir bændur og atvinnulífið?

Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa látið vinna frumúttekt á mögulegum smávirkjana kostum á Norðurlandi vestra og nær hún til yfir 80 staða í landshlutanum. Verkefnið var áhersluverkefni Sóknaráætlunar landshluta árið 2017 og verður fram haldið á þessu ári og því næsta. SSNV stendur fyrir kynningu á verkefninu í fundarsal Samstöðu að Þverbraut 1 á Blönduósi, fimmtudaginn 30. ágúst, klukkan 14-16. Allir eru velkomnir.

 

Dagskrá:

  • Kynning á skýrslu um frumúttekt á smávirkjana kostum á Norðurlandi vestra – Bjarki Þórarinsson, Mannviti.
  • Smávirkjanaverkefni Orkustofnunar – Erla Björk Þorgeirsdóttir, Orkustofnun.
  • Reynslusaga – Vignir Sveinsson, Höfnum.
  • Hleðsla í hlaði – Tjörvi Bjarnason, Bændasamtökum Íslands.
  • Styrkir til rannsókna á mögulegum smávirkjunum – Unnur Valborg Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri SSNV.
  • Fyrirspurnir og umræður.

 

Frétt: huni.is