Ein stærsta snekkja heims lónar nú á Siglufirði eftir að hafa dvalið í Eyjafirði frá því um miðjan apríl.
Snekkjan sem nefnist A, er tæpir 143 metrar að lengd og 25 metra breið og ná möstur hennar þrjú hátt í 100 metra hæð.
Er hún í eigu rússneska viðskiptajöfursins Andrey Melnitsénkó sem sagður er 95. ríkasti maður heims og í sjöunda sæti yfir auðugustu Rússana.
Mynd/ Sigurður Ægisson