Í sumar verður íbúum Dalvíkurbyggðar boðið upp á söfnun á brotajárni, bílhræjum, þakjárni o.fl. járnkyns.

Kostnaður vegna förgunar bílhræja er kr. 10.000 en annars er söfnunin íbúum að kostnaðarlausu.

Íbúar í Dalvíkurbyggð eru hvattir til að nýta sér þetta tækifæri til að fegra umhverfið og bæta ásýnd sveitarfélagsins, enda Fiskidagurinn mikli á næsta leiti, og von á fjölmörgum gestum í bæinn.

Þeir sem hafa áhuga á að losna við brotajárn eða vantar nánari upplýsingar hafi samband á netfangið  borkur@dalvikurbyggd.is