Húnaþing vestra segir á heimasíðu sinni að áætlað sé að safna rúlluplasti vikuna 12 – 16. nóvember nk.
Þeir bændur sem óska eftir því að nýta sér þjónustuna vinsamlega tilkynni það til skrifstofu Húnaþings vestra í síma 455-2400, eða á netfangið: skrifstofa@hunathing.is, fyrir 12. nóvember nk.
Söfnunin kemur til með að hefjast í Hrútafirði og fikrast til austurs fram eftir vikunni eins og áður.
Frekari upplýsingar eru hjá Gámaþjónustunni;
Páll í síma: 895-1345 eða Vilhelm í síma: 893-3858
Gámaþjónustan/Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar og Húnaþing vestra
Forsíðumynd: Kristín Sigurjónsóttir