Oskar Brown, stjórnandi þáttarins, sendir þáttinn út beint frá Studio 7 á Englandi, og hann ætlar að bjóða hlustendum FM Trölla upp á frábæra tónlistarblöndu eins og honum einum er lagið.

Flest lögin sem að Oskar býður upp á þessa vikuna tengjast snjónum, vetrinum og jólunum, og eins og vanalega eru flytjendur bæði íslenskir og erlendir. 

Á meðal þeirra sem að koma við sögu í þættinum í dag eru Abi Mia, Helena Eyjólfsdóttir, Mumford and Sons, Ragga Gröndal, og Sálin Hans Jóns Míns. 

Endilega stilltu á FM Trölla frá kl. 17 í dag, þú sérð ekki eftir því. 

Plötuspilarinn er á FM Trölla alla föstudaga frá kl. 17:00 – 18:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum https://trolli.is/

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is