Í kvöld kl. 19:00 – 21:00 er þátturinn Jólastuð á FM Trölla í beinni útsendingu.

Þessi þáttur er nýjung og renna þáttarstjórnendur alveg blint í sjóinn með hann.

Það eru “Tröllahjónin” Kristín Magnea Sigurjónsdóttir og Gunnar Smári Helgason sem stjórna þættinum.

Leikin verða allskonar jólalög, talað sem minnst á milli og kannski hringt í einhverja á jólakvöldinu í Ólafsfirði.

Fylgist með þættinum Jólastuði á FM Trölla í kvöld á milli kl. 19:00 – 22:00.

FM Trölli næst á FM 103.7 í Eyjafirði, á Tröllaskaga, í Skagafirði, á Hvammstanga og nágrenni og auðvitað um allan heim hér á vefnum trolli.is.

Á vefsíðu FM Trölla er hægt að hlusta á upptökur af öllum þáttum sem eru á dagskrá stöðvarinnar um þessar mundir.

Hægt er að hlusta á þáttinn út um allan heim með því að smella á hlusta á síðunni eða hér: Hlusta

Minnum sjómenn á hafi úti og aðra með takmörkuð netsambönd á skip.trolli.is