Skjálfti að stærð 5,7 varð 33,8 kíló­metra norðaust­ur af Sigluf­irði klukk­an 19:07 sam­kvæmt jarðskjálfta­töflu Veður­stofu Íslands.

Er um að ræða stærsta skjálfta hrin­unn­ar sem staðið hef­ur yfir síðan í há­deg­inu síðastliðinn föstu­dag.

Þrettán eftirskjálftar yfir 3 að stærð og tveir yfir 4 hafa verðið síðasta hálftímann.

Forsíðumyndina tók Björn Jónsson úti á Siglunesi við Siglufjörð þegar fyrsti skjálftinn reið yfir í gær. Var þá grjóthrun í sjó fram.

Fréttin hefur verið uppfærð.