Fjallabyggð auglýsir eftir aðila/aðilum sem kunna að hafa áhuga á að taka að sér rekstur og umsjón með tjaldsvæðum Fjallabyggðar á Siglufirði og í Ólafsfirði sumarið 2019. Um er að ræða þrjú tjaldsvæði, við íþróttamiðstöðina í Ólafsfirði, í miðbæ Siglufjaðar og sunnan við snjóflóðavarnargarðinn Stóra Bola á Siglufirði.

Möguleiki er á að sækja um rekstur allra tjaldsvæðanna eða tjaldsvæði annars bæjarkjarnans.

Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri, hafa bílpróf og bíl til umráða.

Sumarrekstur tjaldsvæða hefst að jafnaði 12. maí og lýkur 15. október, ef aðstæður leyfa.

Samningur er gerður til eins árs með möguleika á framlengingu.

Tjaldsvæði Ólafsfjarðar

Helstu verkefni:

  • Rekstraraðili er ábyrgur fyrir að halda skrá yfir fjölda gesta tjaldsvæðanna og skilar skýrslu þar um til Fjallabyggðar a.m.k. tvisvar yfir tímabilið.
  • Gerð er krafa um sýnileika rekstraraðila með viðveru á tjaldsvæðum a.m.k. tvisvar á dag.
  • Rekstraraðili skal vera í samstarfi við Fjallabyggð varðandi kynningu tjaldsvæðanna á heimasíðu og facebooksíðu sveitarfélagsins.
  • Gerð er krafa um að rekstraraðili hagi rekstri sínum með þeim hætti að hann þjóni sem best breiðum hópi notenda svæðisins.
  • Á opnunartíma svæðisins er gerð krafa um að salernisaðstaða sé þrifin daglega og umgjörð tjaldsvæðanna sé hin snyrtilegasta.
  • Rekstraraðili skal annast og bera ábyrgð á innheimtu gistináttaskatts og þjónustugjalda samkvæmt verðskrá.
  • Rekstraraðili sér um að viðhaldi á þjónustuhúsum sé sinnt.

Reynsla og þekking á ferðaþjónustu og rekstri er kostur.


Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að sækja um starfið á Rafrænni Fjallabyggð https://ibuagatt.fjallabyggd.is/

Með umsókn skal skila starfsferilskrá þar sem menntun og reynsla umsækjanda er tilgreind ásamt stuttri greinargerð um sýn á rekstur tjaldsvæðanna. Fjallabyggð áskilur sér rétt til að óska eftir búsforræðisvottorði og skuldleysisvottorði vegna opinberra gjalda.

Umsóknarfrestur er til og með 17. mars 2019

Frekari upplýsingar veita Linda Lea Bogadóttir markaðs- og menningarfulltrúi í síma 4609100, lindalea@fjallabyggd.is eða Ríkey Sigurbjörnsdóttir deildarstjóri fræðslu-, frístunda- og menningarmála í síma 4649100, rikey@fjallabyggd.is

 

.

 

Forsíðumynd: Fjallabyggð
Mynd í frétt: Tjaldsvæði Ólafsfjarðar