Þann 5. febrúar 2024 óskaði Fjallabyggð eftir stjórnsýslu- og rekstrarúttekt frá ráðgjafafyrirtækinu Strategíu.

Skýrsluna unnu eigendur og ráðgjafar hjá Strategíu, Guðrún Ragnarsdóttir og Helga Hlín Hákonardóttir.

Skýrslan var afhent Fjallabyggð 22. maí 2024.

Skýrslan var birt rúmum sjö mánuðum síðar á vef Fjallabyggðar, eða þann 10. janúar 2025 eftir beiðni um afhendingu hennar frá fréttamiðlinum Trölla.is.

Skýrslan er viðamikil og má sjá hana hér að neðan með því að smella á slóð.

Stjórnsýslu- og rekstrarúttekt Fjallabyggðar 2024