Þann 28. maí stóðu Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra (SSNV) fyrir ráðstefnu um umhverfismál sem bar yfirskriftina Hvað eigum við að gera? 

Kveikjan að ráðstefnunni var vinna samtakanna við greiningu kolefnisspors Norðurlands vestra sem nú stendur yfir í samvinnu við Stefán Gíslason umhverfisstjórnunarfræðings hjá Environice í Borgarnesi. Verkefnið er áhersluverkefni Sóknaráætlunar fyrir árin 2018 og 2019.

Stefán greindi frá bráðabirgðaniðurstöðum á greiningu sinni á kolefnisspori landshlutans í erindi á ráðstefnunni og er óhætt að segja að fyrstu niðurstöður séu sláandi. Skv. þessum fyrstu útreikningum Environice er heildar kolefnislosun landshlutans 1.774.378 tonn. Skipting losunarinnar er eftirfarandi:

Staðbundin orkunotkun 14.757 0,83%
Orkunotkun í flutningum 56.120 3,16%
Meðhöndlun úrgangs 7.225 0,41%
Iðnaðarferlar 478 0,03%
Búfé 118.813 6,70%
Landnotkun 1.576.378 88,88%
Samtals 1.774.378 100%

 

Sjá ennfremur á vef ssnv.is