Í dag laugardaginn 4. maí verður haldin stór æfing slökkviliðs Húnaþings vestra og reikna má með að slökkviliðið verði töluvert sýnilegt á Hvammstanga í dag.

Bæði gæti reykur verið sjáanlegur og eins eldur. Mikilvægt er að taka fram að um aðkomuæfingar slökkviliðs og sjúkraflutninga er að ræða og því ekkert að óttast verði fólk vart við mögulegt sírenu væl, eld og reyk.