Stóri Plokkdagurinn er á morgun 24. apríl.
Stóri Plokkdagurinn verður haldinn á morgun, sunnudaginn 24. apríl.
Fjallabyggð mun taka þátt og leggur til poka sem aðgengilegir verða áhugasömum Plokkurum í íþróttamiðstöðvum Fjallabyggðar bæði í Ólafsfirði og á Siglufirði dagana fyrir Plokkdaginn mikla og á Plokkdaginn sjálfan. Opnunartíma íþróttamiðstöðva er að finna hér.
Íbúar og vinir Fjallabyggðar eru hvattir til að taka virkan þátt í Stóra Plokkdeginum og tína plast og pappa annað rusl sem fallið hefur til frá íbúum, framkvæmdum eða þungaflutningum innan marka sveitarfélagsins.
SÖFNUNARSTAÐIR Í FJALLABYGGÐ VERÐA EFTIRFARANDI:
Ólafsfjörður:
Túnið við íþróttamiðstöðina (hjá ærslabelgnum)
Brennusvæðið vestan óss
Siglufjörður:
Malarvöllurinn
Facebooksíða Plokk á Íslandi
Plokk.is
Mynd/Hugborg Inga Harðardóttir