Þann 11. desember klukkan 19:30, munu nemendur Menntaskólans á Tröllaskaga stíga á stokk og ætla sér það verkefni að halda tónleika til styrktar Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis. Alls eru það sex nemendur í áfanga sem heitir Skapandi tónlist og meðal flytjenda eru sigurvegarar söngkeppni framhaldsskólanna 2020.
Lokaverkefnið í áfanganum er að halda tónleika og skipuleggja þá sjálf frá grunni. Okkur langar að gefa af okkur á þessum skrítnu tímum og þess vegna ætlum við að skemmta fólki með tónlist og safna pening fyrir Krabbameinsfélag Akureyrar í leiðinni. Tónleikunum verður streymt á Youtube rás MTR tónlist. https://www.youtube.com/watch?v=to6q7InTXjs
Þema tónleikanna verður jólasöngvar í bland við almenna gleði og klassíska smelli.
Opnaður verður reikningur, sem mun sjást á skjánum, svo fólk getur lagt inn það fjármagn sem það vill til styrktar félaginu. Við vonum að sem flestir fylgist með og njóti.
Flytjendur eru:
Amalía Þórarinsdóttir – Söngur.
Helena Reykjalín Jónsdóttir – Söngur.
Hörður Ingi Kristjánsson – Píanó og Hljómborð.
Júlíus Þorvaldsson – Gítar og Söngur.
Mikael Sigurðsson – Bassi.
Tryggvi Þorvaldsson – Gítar og Söngur.
Kristján Már Kristjánsson – Trommur.
Fyrir frekari upplýsingar er hægt að hafa samband við Tryggva Þorvaldsson í síma 896-2424 eða í tölvupósti Tryggvi2750@gmail.com
Brot af því sem nemendur hafa gert:
Söngkeppni framhaldsskólanna:
Frétt af trolli.is
Myndband: All I Want – Amalía Þórarinsdóttir
Samfélagsmiðlar MTR Tónlist:
Krabbameinsfélagið
Heimasíða Krabbameinsfélagsins á Akureyri Krabbameinsfélag Akureyrar á Facebook