Sumartíminn tók gildi á meginlandi Evrópu í nótt kl. 01.00 og var klukkunni flýtt um eina klukkustund. Verður því háttað fram til sunnudagsins 30. október, eða næstu 30 vikur.
Evrópskur sumartími er sumartími sem fylgt er í öllum Evrópulöndum nema Íslandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi.
Evrópuþingið samþykkti árið 2018 að klukkuhringli milli sumar- og vetrartíma skyldi hætt í Evrópu.
Af því hefur þó ekki orðið enn. Fyrst þarf hvert ríki fyrir sig að ákveða hvort það hyggst halda í núverandi sumartíma, sem þegar er í gildi meirihluta ársins, – eða vetrartímann.