Sumartíminn tók gildi á meginlandi Evrópu í nótt kl. 01.00 og var klukkunni flýtt um eina klukkustund. Verður því háttað fram til sunnu­dags­ins 30. októ­ber, eða næstu 30 vik­ur.

Evrópskur sumartími er sumartími sem fylgt er í öllum  Evrópulöndum nema Íslandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi.

Evr­ópuþingið samþykkti árið 2018 að klukku­hringli milli sum­ar- og vetr­ar­tíma skyldi hætt í Evr­ópu.

Af því hefur þó ekki orðið enn. Fyrst þarf hvert ríki fyr­ir sig að ákveða hvort það hyggst halda í nú­ver­andi sum­ar­tíma, sem þegar er í gildi meiri­hluta árs­ins, – eða vetr­ar­tím­ann.