Sundlaug Fjallabyggðar í Ólafsfirði opnar á ný eftir framkvæmdir. Endurbótum er ekki að fullu lokið en ákveðið hefur verið að opna sunnudaginn 3. júlí nk. Opið verður samkvæmt auglýstum opnunartíma.

Framkvæmdir hófust 1. apríl og átti þeim að ljúka þann 31. maí sl.  Fjallabyggð biðst afsökunar á þeim töfum sem urðu á verkinu vegna afhendingar efnis við endurnýjun búningsklefa og þar með opnun sundlaugarinnar.

Síðar í sumar verður farið í endurnýjun á efni í heitum pottum og lendingarlaugum. Sundlauginni verður EKKI lokað á meðan þær framkvæmdir standa yfir, einungis þau ker sem unnið er með hverju sinni.

Sjá opnunartíma íþróttamiðstöðva í Fjallabyggð sumarið 2022: HÉR