Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga í Fjallabyggð þann 14. maí 2022 er til sýnis í Ráðhúsi Fjallabyggðar, Gránugötu 24, Siglufirði og bókasafninu á Ólafsvegi 4, Ólafsfirði, á auglýstum opnunartíma skrifstofu virka daga fram til 14. maí.

Kjörskráin miðast við skráningu lögheimilis í sveitarfélagi eins og það er samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár kl. 12:00 á hádegi 38 dögum fyrir kjördag. Viðmiðunardagur kjörskrár var því 6. apríl sl.

Kjósendum er einnig bent á vefinn Þjóðskrá en þar má m.a. finna hvar kjósendur eru á kjörskrá. Kjósendur eru hvattir til þess að kynna sér hvort nöfn þeirra séu á kjörskránni.

Athugasemdum við kjörskrá skal beint til Þjóðskrár Íslands. Ef við á má gera leiðréttingar á kjörskrá fram á kjördag.

Kjósendum er einnig bent vefinn https://www.kosning.is þar sem er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar.

Kjörstaður í Ólafsfirði verður í Tjarnarborg og á Siglufirði í Ráðhúsinu, 2. hæð.