“Kátínur- Gleðigjafar”. Arnfinna Björnsdóttir (Abbý á Siglufirði) opnar sýningu á Kaffi Klöru í Ólafsfirð í dag, laugardaginn 15. maí.
Verkin eru unnin á þessu vori og hafa þau veitt Arnfinnu mikla kæti hvað varðar litasamsetningu og form.
Sýningin er opin í dag og á morgun sunnudaginn 16. maí frá kl. 15:00-17:00 og mun standa fram í júní.
Forsíðumynd/ Kristín Magnea Sigurjónsdóttir