Sýning á verkum nemenda Menntaskólans á Tröllaskaga opnar í dag, laugardaginn 11. desember kl. 13:00-16:00.

Sýningin verður í skólahúsinu og er einnig á netinu.

Á sýningunni er afrakstur vinnu nemenda frá haustönninni undir kjörorðunum frumkvæði, sköpun og áræði.

Á meðan samgöngutakmarkanir hömluðu hefðbundnu sýningarhaldi voru sýningar í lok haust- og vorannar alfarið í einskonar sýndarveruleikasal á netinu. Þó að nú sé hægt að koma saman, sýna og fagna afrakstri annarinnar nýtum við dásemdir tækninnar og sýnum verk fjarnema í sýndarheimi en verk staðnema hanga á veggjum skólahússins.

Þannig sparast að senda listaverk landshorna á milli og jafnvel erlendis frá með tilheyrandi umhverfisáhrifum. Sömuleiðis eru öll ljósmyndaverk á og nemendur spara þar með pappír og prentun. Menntaskólinn er Grænfánaskóli og leggur mikla áherslu á umhverfismál og þetta er liður í þeirri viðleitni.

Smellið hér til að skoða sýninguna á netinu.

Verið velkomin í skólann og gætið að sóttvörnum og fjarlægðarmörkum.

Mynd/Gísli Kristinsson