Opnun sýningarinnar „Ólafsfjarðarvatn“ í Pálshúsi Strandgötu 4, Ólafsfirði verður í dag, laugardaginn 18. maí kl. 14:00.
Þá er einnig listsýning Kristins E. Hrafnssonar í Pálshúsi.
Í verkum Kristins má greina heimspekilegan þráð og vangaveltur um rúm og tíma, hreyfingu, afstæði og tungumál. List hans fjallar um manninn og skilning hans á umhverfi sínu og hvernig náttúran mótar sýn hans og samskipti.