Þegar skólarnir klárast á vorin fara flest ungmenni í sumarvinnu en sumarvinnan gefur þeim dýrmæta starfsreynslu á vinnumarkaði.

Að mörgu er að huga þegar farið er út á vinnumarkaðinn og hér eru því nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga.

Tékklisti sumarstarfsmanns

  • Veit ég hver kjör mín eru, eftir hvaða samningi er ég að fá greitt?
  • Hef ég fengið skriflegan ráðningarsamning? (Eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að starf hefst)
  • Hver er vinnutíminn minn? Er vaktaskrá?
  • Hvenær er matartími og hvað má ég vinna mikið?
  • Fæ ég ekki örugglega launaseðil?
  • Er ég að nýta skattkortið, er greiddur skattur af laununum mínum?
  • Veit yfirmaður minn hvenær ég hyggst fara í frí? Á ég rétt á orlofi?
  • Hvenær ætla ég að hætta vegna skóla?
  • Hver er uppsagnarfresturinn minn, eða er samningurinn tímabundinn?

Ef óvissa ríkir um eitthvað af þessu er upplagt að hafa samband á netfangið ein@ein.is

Skoða á vef Einingar-Iðju