Textasamkeppnin Fernuflug var haldin meðal grunnskólanema í 8.-10. bekk í september.

Alls bárust 1200 textar frá landinu öllu. 

Það er ánægjulegt að segja frá því að nemandi í 8 .bekk í Grunnskóla Fjallabyggðar, Elvar Orri Þorsteinsson á einn af þeim 48 textum sem valdir hafa verið til birtingar á mjólkurfernum MS. 

Textinn fer á mjólkurfernurnar í upphafi nýs árs.