Starfsfólk Síldarminjasafnsins kynnir nýútgefna bók safnsins á útgáfuhófi í Gránu, fimmtudaginn 6. desember kl. 17:00.

Bókin, Siglufjörður. Ljósmyndir / Photographs 1872-2018, er gefin út í tilefni 100 ára kaupstaðarafmælis og 200 ára verslunarafmælis Siglufjarðar – og er gjöf safnsins til samfélagsins.

Lesnir verða valdir kaflar úr bókinni – sagt frá tilurð hennar og vinnsluferli, en safnið sjálft er útgefandi.
Gestir geta svo auðvitað tryggt sér eintak á staðnum. Verð: 9.500 kr.

Höfundar bókarinnar eru starfsfólk Síldarminjasafns Íslands, Anita Elefsen safna- og sagnfræðingur, Steinunn M. Sveinsdóttir sagnfræðingur og Örlygur Kristfinnsson fyrrum safnstjóri.

Léttar veitingar í boði – og allir velkomnir!